Strætóbílstjórar í Kaupmannahöfn hafa lagt niður vinnu. Samkvæmt frétt á fréttavef Berlingske Tidende eru starfsmenn hjá Veolia strætófyrirtækinu í verkfalli en þeir munu funda fyrir hádegi í dag. Vagnar á um 50 strætisvagnaleiðum standa nú kyrrstæðir.