Óvænt snjókoma olli vandræðum í Jóhannesarborg og á fleiri stöðum í Suður-Afríku í dag. Loka varð mörgum þjóðvegum þegar snjó kyngdi niður í morgun í Jóhannesarborg og nágrenni. Mjög sjaldgæft er að það snjói á þessu svæði - jafnvel á veturna.
Ekki er gert ráð fyrir því að snjórinn haldist þar sem sólin bræðir hann þegar líða tekur á daginn.