Breska lögreglan hefur lokað helstu götum í miðborg Lundúna vegna grunsamlegs ökutækis. Ekki hafa borist frekari fregnir af málinu en samkvæmt upplýsingum AP fréttastofunnar frá talsmanni lögreglunnar er um bifreið að ræða á Park Lane, við austurenda Hyde Park. Ekki er vitað hvort þetta tengist fyrirhugaðri hryðjuverkaárás sem lögreglu tókst að koma í veg fyrir í nótt.
Lögregla var kölluð út vegna grunsamlegrar bifreiðar við Haymarket sem er í nágrenni Picadilly Circus um tvöleytið í nótt. Í bifreiðinni voru gas- og bensínkútar auk þess mikið magn af nöglum var í bifreiðinni.