Breskur karlmaður var í dag dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa nauðgað og myrt tveggja ára gamla frænku sína í Leeds í febrúar. Michael Mullen, 21 árs, viðurkenndi að hafa nauðgað og kyrkt Casey Leigh Mullen á efri hæð hússins sem hún bjó í en foreldrar hennar voru á neðri hæð hússins er Mullen framkvæmdi ódæðið.
Lögregla fann í tölvu morðingjans klámfengnar myndir af börnum. Í síma hans var mynd af litlu stúlkunni þar sem hún var nakin fyrir neðan mitti.
Michael Mullen er föðurbróðir litlu stúlkunnar og hafði komið heim með David, föður stúlkunnar, en þeir höfðu setið að sumbli fyrr um daginn. Michael fór upp á efri hæð hússins og fannst síðar sofandi við hlið litlu stúlkunnar. Síðar kom hann niður og var þá á hraðferð heim. Nokkrum mínútum síðar fundu foreldrar stúlkunnar hana látna í rúmi sínu, samkvæmt frétt á vef BBC.