Lögregla ræðir við nána vini foreldra Madeleine

Foreldarar Madeleine McCann, Gerry og Kate McCann.
Foreldarar Madeleine McCann, Gerry og Kate McCann. AP

Þrír nánir vinir foreldra Madeleine McCann, sem hvarf úr hótelíbúð í bænum Praia da Luz þann 3. maí sl., eru meðal þeirra sem portúgalska lögreglan ræðir við í tengslum við hvarf stúlkunnar. Sky sjónvarpsstöðin hefur þetta eftir heimildum.

Í gær yfirheyrði portúgalska lögreglan Bretann Robert Murat, í þriðja sinn. Murat, sem neitar því að eiga aðild að málinu, var nokkrar klukkustundir í yfirheyrslu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert