Tíu tonn af dauðum fiski í serbneskri á

Nærri tíu tonn af dauðum fiski fundust í mengaðri á í Serbíu, en þetta er í annað sinn í mánuðinum sem það gerist. Fiskurinn fannst í ánni Toplica í miðhluta Serbíu, en hún er ein af smærri ám sem renna í fljótið Sava.

Dragan Mijajlovic, talsmaður samtaka veiðimanna segir að atvikið sé mjög svipað því sem gerðist fyrr í mánuðinum, en þá fundust um 20 tonn af dauðum fiski sem hafði drepist vegna ammoníakseitrunar. Sagði Mijajlovic að rannsókn yrði að leiða í ljós hver bæri ábyrgð á menguninni. Sýni hafa verið tekin bæði úr ánni og dauðum fiski og verður málið rannsakað.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert