Myrti eiginkonu sína eftir að þau eignuðust þríbura

Lögregla í Nígeríu greindi frá því í dag að leit standi yfir að manni sem er grunaður um að hafa myrt eiginkonu sína eftir að þau eignuðust þríbura fyrr í mánuðinum. Fyrir áttu hjónin tvíbura.

AP-fréttastofan hefur eftir yfirmanni í lögreglunni að maðurinn hafi verið mjög ósáttur eftir að þau eignuðust þríbura þann 5. júlí sl. Tók hann upp á því að drekka ótæpilega og þegar hann kom heim dauðadrukkinn þann 11. júlí hafi hann barið konu sína til ólífs. Maðurinn, Ikechukwu Eze, lét sig hverfa í kjölfarið og er hans eins og áður sagði leitað.

Móðir mannsins reyndi að stöðva hann við barsmíðarnar og sló hann tönn úr henni. Eiginkonan lést að völdum áverka á sjúkrahúsi en þríburunum var komið fyrir á munaðarleysingjahæli í Lagos.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert