Breskar hjálparlínur búa sig undir hringingar frá örvæntingafullum Harry Potter lesendum

Hjálparlínur sem veita ungmennum sálfræðiaðstoð búa sig nú undir að fá hringingar frá örvæntingarfullum aðdáendum Harry Potter bókanna eftir að síðasta bókin kemur út í kvöld. Hætt er við því að lesendum bókanna um galdranemandann finnist þeir hafa misst einhvern náinn eftir að bókaflokknum lýkur. Talsmaður Childline hjálparlínunnar nefnir sem dæmi að þúsundir símtala hafi borist eftir að sönghópurinn Take That hætti.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert