Mótmælt með kossum

Samtök samkynhneigðra í Danmörku hafa skipulagt mótmæli fyrir utan ítalska sendiráðið í Kaupmannahöfn til að mótmæla því, að tveir ítalskir samkynhneigðir karlmenn voru handteknir fyrir að kyssast á almannafæri.

Að sögn norrænna fjölmiðla munu kossar verða áberandi í mótmælaaðgerðunum í dag utan við sendiráðið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert