Hópur ungra, vinstrisinnaðra Ísraela mótmælti í dag meintu aðgerðarleysi ísraelskra stjórnvalda gagnvart eldflaugaárásum Palestínumanna á Ísrael með því að skjóta eggjum og grænmeti inn á Gaza-svæðið norðanvert með heimasmíðuðum „eggja- og grænmetisvörpum.“
Ísraelarnir hönnuðu vörpurnar sjálfir og notuðu endurunnar vörur við smíði þeirra. Þeir skutu síðan tómötum, eplum, maískólfum og ýmsu öðru grænmeti frá Nir Am-samyrkjubúinu yfir á Gazasvæðið.