Bush hvetur til sanngjarnra kosninga í Pakistan

George W. Bush, Bandaríkjaforseti.
George W. Bush, Bandaríkjaforseti. Reuters

Bandaríkjaforseti hvetur Pakistan til þess að efna til sanngjarnra kosninga, eftir að forsetinn hætti við að lýsa yfir neyðarástandi í landinu. George W. Bush hvatti Musharraf, forseta Pakistans, einnig til þess að bregðast við upplýsingum um hryðjuverkamenn. Hann segir leiðtoga Pakistans hafa jafnmiklar áhyggjur af róttæklingum og öfgamönnum og Bandaríkjamenn.

Bandaríkin hafa þrýst á kosningar svo Musharraf styrki lögmæti sitt í embætti forseta, en hann tók við völdum eftir friðsama stjórnarbyltingu árið 1999.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert