Útsendingum BBC á rússnesku hefur verið hætt á FM bylgju í rússnesku útvarpi þar sem forsvarsmönnum útvarpsstöðvanna hefur verið hótað að stöðvum þeirra verði lokað hætti þeir ekki að útvarpa efni BBC á rússnesku. Greint er frá þessu á vef BBC. Hins vegar er hægt að hlýða á BBC á Netinu og á lang- og stuttbylgju.
Forsvarsmenn BBC segja að þeir munu formlega mótmæla þessari ákvörðun stjórnvalda.