Toys „R" Us innkallar liti

Toys
Toys "R" Us AP

Bandaríska leikfangakeðjan Toys „R" Us hefur innkallað 27 þúsund pakkningar með litum og málningardóti sem framleiddar eru í Kína þar sem umbúðir þeirra reyndust innihalda blý auk þess sem einhverjir vatnslitir í pakkningunum innhéldu einnig blý.

Litakassarnir, Imaginarium Wooden Coloring Cases, innihalda meðal annars vaxliti, vatnsliti, pensla og litaspjald. En umbúðirnar eru ljósar á lit úr við.

Sala á litunum hófst í Toys "R" Us í október í fyrra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert