Ghaleb Majadele, menningar og íþróttamálaráðherra Ísraels, hefur fyrstur ísraelskra ráðherra viðurkennt að flugvélar ísraelska flughersins hafi farið inn í lofthelgi Sýrlands í gær. Segir hann ísraelskar herflugvélar fara reglubundið inn í lofthelgi Sýrlands og að hann telji ekki að atvikið í gær muni leiða til stríðsátaka á milli þjóðanna. Þetta kemur fram á fréttavef Ha’aretz.