Von á nýju myndbandi með Osama bin Laden

Tvíburaturnarnir í New York jöfnuðust við jörðu í hryðjuverkaárásunum þann …
Tvíburaturnarnir í New York jöfnuðust við jörðu í hryðjuverkaárásunum þann 11. september árið 2001. Reuters

Al-Qaida hryðjuverkasamtökin hafa tilkynnt að þau muni senda frá sér nýtt myndband með Osama bin Laden fljótlega en þar kynnir hann vitnisburð eins af árásarmönnunum þann 11. september 2001.

Þetta kemur fram á íslamskri vefsíðu þar sem gjarnan eru birtar tilkynningar frá al-Qaeda. Myndband með ávarpi bin Ladens birtist fyrir þremur dögum.

Á vefsíðunni voru birtar myndir af bin Laden og r Walid al-Shehri, einum flugræningjanna 19 sem gerðu árásirnar á Bandaríkin 11. september.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert