Bæði Lundúnir og París eru samkvæmt alþjóðlegri könnun komnar upp fyrir Tókýo á lista yfir þær borgir þar sem dýrast er að fara út að borða. Tókýó var efst á listanum fyrir ári en er nú í þriðja ári. Reykjavík er ekki með í þessum samanburði.
Að sögn Zigat veitingahúsalistans kostar nú þriggja rétta máltíð að jafnaði 39,09 pund, jafnvirði 5230 króna, í Lundúnum og hefur verðið hækkað um 2,9% frá því í fyrra. Í París er meðalverðið 35,37 pund eða 3193 krónur, og í Tókýó 35,10 pund eða jafnvirði 3168 króna.
Í New York kostar samskonar máltíð með einum drykk, skatt og þjónustugjaldi, 19,30 pund eða 1742 krónur.
Íbúar í Lundúnum borða úti að jafnaði 2,5 sinnum í viku en í New York fara íbúðar að jafnaði 3,4 sinnum.