Fullir norskir hermenn skutu af byssum í Afganistan

Tveir norskir hermenn eiga á hættu að verða reknir úr hernum en þeir drukku sig fulla og skutu úr Glock skammbyssum inni í höfuðstöðvum NATO í Kabul, höfuðborg Afganistans. Þetta kemur fram í tilkynningu frá norska hernum. Ekki er upplýst hvort einhvern hafi sakað.

Norska blaðið VG hefur eftir Kjetil Eide, talsmanni norsku herstjórnarinnar, að norsk herlögregla rannsaki nú málið.

Blaðið hefur eftir Eide, að heimilt sé að drekka áfengi í höfuðstöðvum NATO í Kabul en ekki sé leyfilegt að bera vopn við þá iðju.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert