Lögregla í Bandaríkjunum fann í gær rúmlega þrítuga konu sem setið hafði föst í bíl sínum í átta daga í sex metra djúpu gljúfri í nágrenni Seattle. Konan mun vera illa á sig komin af vökvaskorti og með legusár eftir að hafa setið föst í sömu stellingu í allan þennan tíma.
Eiginmaður konunnar hefur gengist undir lygapróf til að sanna sakleysi sitt í málinu en hann tilkynnti um hvarf hennar er hún skilaði sér ekki heim úr vinnu þann 19. september.
Lögregla fann bíl konunnar sem var hulinn trjám eftir að merki greindist frá farsíma hennar