Myrtur fyrir að kvarta undan táfýlu

Maður í Texas hefur verið sakaður um að hafa stungið herbergisfélaga sinn til bana vegna þess að herbergisfélaginn fann að því að mikil táfýla væri af manninum, að því er lögreglan í Houston greindi frá í dag. Mennirnir leigðu saman lítið svefnherbergi í húsi í borginni, og höfðu setið að drykkju er til handalögmála kom með þessum afleiðingum.

Frá þessu greinir Houston Chronicle. Hinn grunaði, William Anonio Serrano, er tvítugur. Hann hefur verið ákærður fyrir morð.

Lögreglan greindi svo frá, að Serrano og herbergisfélagi hans hafi lent í rifrildi og í því hafi herbergisfélaginn sagt að það væri táfýla af Serrano. „Þá brá Serrano hnífi á loft og stakk fórnarlambið mörgum sinnum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert