Tíu manns fórust þegar flugvél fórst í Washingtonríki á vesturströnd Bandaríkjanna. Leitarmenn fundu flak flugvélarinnar í nótt. Í vélinni voru 9 fallhlífastökkvarar auk flugmanns en þeir voru á leið heim til Shelton af fallhlífastökkvaramóti, sem haldið var í Star í Idaho.