Tveir menn réðust inn á heimili í Grønnemose Allé í norðvesturhluta Kaupmannahafnar í gærkvöldi og réðust þar harkalega á 35 ára karlmann fyrir framan eiginkonu hans og gesti þeirra. Fólkið sat í stofu er mennirnir, sem voru hettuklæddir og vopnaðir, hringdu dyrabjöllunni. Maðurinn opnaði fyrir þeim og drógu þeir hann með sér inn í stofuna þar sem þeir réðust á hann. Þeir yfirgáfu síðan heimilið með nokkur þúsund króna þýfi. Þetta kemur fram á fréttavef Jyllands-Posten.