Lögregla í Bandaríkjunum hefur handtekið mann sem talinn er hafa nauðgað þriggja ára stúlkubarni og tekið atvikið upp á myndband. Bandaríska alríkislögreglan FBI birti fyrir nokkru myndir af barninu og lýsti eftir upplýsingum um það en það var í fyrsta skipti sem stofnunin birti myndir af barni úr slíku myndbandi.
Upplýsingar um það hvert barnið væri bárust fljótlega eftir að myndirnar voru birtar þann 25. september og í kjölfar þess var Chester "Chet" Arthur Stiles nafngreindur og eftirlýstur vegna málsins.
Stiles mun hafa gefið sig mótþróalaust fram við lögreglu í gær eftir að hann var stöðvaður fyrir að aka um án skráningarnúmers. Áður hafði lögregla varað við því að hann væri sennilega vopnaður og hættulegur.