Kanadíska alríkislögreglan segir að sex karlmenn hafi fundist myrtir í íbúð í fjölbýlishúsi í úthverfi Vancouver á vesturströndinni á föstudaginn, og svo virðist sem um skipulagt fjöldamorð hafi verið að ræða. Talsmaður rannsóknarlögreglunnar sagði í gær að enn væri ekki búið að bera kennsl á öll líkin.
Lögreglan segir líklegt að morðin tengist verslun með fíkniefni, og að íbúðin, sem er á 15. hæð, hafi verið notuð til slíkra viðskipta.