Lík breskrar konu fannst í sjónum við Mallorca

Lík breskrar konu, sem leitað hefur verið að á Mallorca í þrjá daga, fannst í kvöld í sjónum nálægt Cala Domingos á austurhluta eyjarinnar. Sjö ára gömul dóttir konunnar féll af hótelsvölum á fimmtu hæð á mánudagsmorgun niður á húsþak fyrir neðan. Talið er að konan hafi verið svo örvæntingarfull vegna þessa slyss að hún hafi kastað sér í sjóinn og drukknað.

Konan hét Sara Cooper og var 45 ára. Hún var í fríi í Calais de Mallorca ásamt manni sínum og þremur börnum. Stúlkan, sem féll af svölunum, fékk höfuðáverka og innvortis áverka en er ekki talin í lífshættu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert