Hörð heimspólitísk átök eru í uppsiglingu um yfirráð yfir heimskautunum, bæði norðurskautinu og suðurskautinu. Rússar komu nýlega fyrir rússneskum fána á hafsbotni á norðurpólnum, Bandaríkjamönnum, Kanadamönnum og Dönum til talsverðrar gremju. Þá eru margar þjóðir að undirbúa landakröfur á suðurpólnum en þar eru taldar vera gríðarlegar olíulindir og óunnir málmar.