Musharraf ítrekar fyrirheit um kosningar

Lögmenn í Pakistan hafa staðið fyrir mótmælum gegn Pervez Musharraf …
Lögmenn í Pakistan hafa staðið fyrir mótmælum gegn Pervez Musharraf og neyðarlögunum, sem hann hefur sett. AP

Ríkisfjölmiðlar í Pakistan höfðu eftir Pervez Musharraf, forseta landsins í dag, að þingkosningar verði haldnar fyrir 15. febrúar á næsta ári. Þá ítrekaði Musharraf fyrirheit um að hann muni segja af sér sem yfirmaður hers landsins. Musharraf lýsti yfir neyðarástandi í landinu um síðustu helgi og rak forseta hæstaréttar úr embætti.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert