Maður lést í Kanada þegar lögreglumenn skutu hann með rafstuðbyssu

Búið er að birta opinberlega myndskeið í Kanada sem sýnir síðustu andartök innflytjanda sem lést þegar lögreglan skaut hann með rafstuðbyssu. Robert Dziekanski, sem var fertugur innflytjandi frá Póllandi, var handtekinn af lögreglu þegar hann missti stjórn á skapi sínu á alþjóðaflugvellinum í Vancouver þann 14. október sl.

Dziekanski, sem talaði enga ensku, var látinn þegar sjúkraliðar komu á vettvang. Lögreglan, flugvallaryfirvöld og dánardómstjóri hafa málið til rannsóknar.

Talsmaður lögreglunnar segir að myndskeiðið, sem 15 ára gamall drengur tók, sé aðeins hluti sönnunargagnanna og hvatti hann fólk til þess að bíða eftir rannsóknarniðurstöðunum.

Dziekanski, sem starfaði sem verkamaður, var að flytja til Kanada til þess að búa með móður sinni, sem býr í Bresku-Kólumbíu.

Atvikið hefur vakið upp umræður varðandi notkun kanadískra lögreglumanna á svokölluðum Taser rafstuðbyssum.

Frá árinu 2003 hafa 18 látist í Kanada eftir að hafa verið skotnir með rafstuðbyssum samkvæmt upplýsingum frá kanadíska ríkisútvarpinu. Byssurnar skjóta tveimur pílum út sem eru tengdar byssunni með tveimur þráðum. Sá sem fær pílurnar í sig fær um leið 50.000 volta rafstraum, en það er nægilega mikið magn til þess að lama manneskju um stundarsakir. Drægni vopnsins er um sex metrar.

Bandarískur lögreglumaður sést hér halda á Taser rafstuðbyssu sem starfsbræður …
Bandarískur lögreglumaður sést hér halda á Taser rafstuðbyssu sem starfsbræður hans í Kanada bera og notuðu á flugvellinum í Vancouver. AP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka