Hluti Eiffelturnsins var seldur á uppboði í París í gær. Hringstigi á milli þriðju og fjórðu hæðar turnsins varð að víkja fyrir nýrri lyftu og var byrjað að bjóða tæpar tvær milljónir króna en stiginn var sleginn Hollendingi á þrettán og hálfa milljón íslenskra króna.
Stiginn hefur verið hluti af frægasta turni Parísar síðan 1889.