Sextíu og fjórir flóttamenn, þar af þrjú börn, á leið frá Sómalíu til Jemen drukknuðu á Aden-flóa í dag. Bátnum hvolfdi undan ströndum héraðsins Chabwa í Jemen og komust um 25 á sundi í land. Strandgæsla Jemen og fiski bátar á svæðinu hafa leitað að líkum hinna látnu.