Pervez Musharraf Pakistansforseti lét í dag af embætti sem æðsti yfirmaður hersins, en á morgun mun hann sverja embættiseið sem borgaralegur forseti. Hann valdi sjálfur eftirmann sinn, Ashfaq Kayani generál.
Þrýst hefur verið á Musharraf að láta af embættinu, og langt er síðan hann lofaði að verða við þeim kröfum.