Ástralar staðfesta Kyoto-sáttmálann

Kevin Rudd.
Kevin Rudd. AP

Kevin Rudd, nýr forsætisráðherra Ástralíu, sagðist í morgun hafa skrifað undir skjöl til að staðfesta Kyoto-sáttmálann um losun gróðurhúsalofttegunda en Rudd sór embættiseið í gær.

„Þetta er fyrsta formlega stjórnarathöfn nýju áströlsku stjórnarinnar og sýnir fram á að ríkisstjórn mín er staðráðin í að berjast gegn loftslagsbreytingum," sagði Rudd í yfirlýsingu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert