Framkvæmd nýafstaðinna þingkosninga í Rússlandi stóðst ekki alþjóðlegar kröfur, segir í tilkynningu frá forsæti Evrópusambandsins í dag. Margar kvartanir hafi borist vegna meintra takmarkana á fjölmiðlun og áreitni við stjórnarandstæðinga og sjálfstæð samtök í aðdraganda kosninganna.