Ísraelskir hermenn skutu palestínskan bónda til bana í dag nærri bænum Khan Yunis á Gasa-svæðinu, þá særðist annar. Ísraelski herinn segist ætla að kanna atvikið en í gær bárust fregnir af þvi að eldflaugum hefði verið skotið í átt að Ísrael á þessum slóðum.