Ökumanni bíls sem hékk á bláþræði utan á sjöttu hæð á bílastæðahúsi í Atlanta í Bandaríkjunum var komið til bjargar af hugrökkum slökkviliðsmönnum.
Vitni kváðust hafa heyrt mikil brothljóð og fundið húsið nötra þegar bílnum var ekið út í gegnum vegginn á húsinu. Ekki fylgir sögunni á hverju bíllinn hékk.
Slökkviliðsmenn fundu ökumanninn meðvitundarlausan í bílnum, og var hann fluttur á sjúkrahús.