Breskur dómstóll hefur úrskurðað að lögregluþjónum sem skutu saklausan brasilískan mann til bana í neðanjarðarlest í London, verði ekki refsað.
Charles de Menezes, 27 ára Brasilíumaður, var skotinn til bana af lögreglu í neðanjarðarlest í Stockwell hverfi London árið 2005.
Lögregluþjónarnir fjórir töldu sig vera að elta sjálfsmorðsárásarmann, en hann var ranglega grunaður um að hafa átt aðild að sprengingunum í neðanjarðarlestum í London í júlí 2005.