Tólf ára bandarísk stúlka fannst á lífi í flaki lítillar flugvélar sem hrapaði slæmu veðri í frumskógi í vesturhluta Panama á sunnudag. Stúlkan, Francesca Lewis, var slösuð og þjáðist af ofkælingu þegar íbúar á svæðinu fundu hana.
Hún var flutt á sjúkrahús og er ástand hennar sagt vera stöðugt, að því er fram kemur á vef BBC.
Auk Lewis var 13 ára gömul vinkona hennar í vélinni, faðir hennar, sem bæði eru bandarísk, og flugmaður frá Panama. Þau létust öll og björgunarsveitarmenn fundu lík þeirra í flugvélaflakinu.