Herskáir Palestínumenn skutu tvo Ísraela til bana í nágrenni borgarinnar Hebron á Vesturbakkanum í dag. Ísraelarnir voru í göngu á þekktu útivistarsvæði er skotið var á þá úr bíl á ferð.
Al-Aqsa samtökin sem eru tengd Fatah-hreyfingunni, hafa lýst ábyrgð á árásinni á hendur sér.