Villigeltir ollu miklum vandræðum þýskri hraðbraut nú um helgina, og ollum m.a. nokkrum umferðaróhöppum. Lögreglan neyddist til að loka hluta hraðbrautarinnar í um klukkustund af þessum völdum.
Um tugir svína hlupu þvert yfir hraðbraut í Brunswick í norðurhluta Þýskalands með þeim afleiðingum að fjöldi ökumanna þurftu að snarhemla og beygja snögglega til að forðast árekstur.
Geltirnir ollu þremur umferðarslysum þar sem fimm bifreiðar skemmdust mikið. Engan sakaði. Skógarverðir þurftu hinsvegar að aflífa þrjá villigelti sem urðu fyrir bílum. Hinir geltirnir komust undan.