Liðsmenn Sea Shepherd teknir í gíslingu

Eitt af skipum Sea Shepherd á hvalamiðunum í Suðurhöfum á …
Eitt af skipum Sea Shepherd á hvalamiðunum í Suðurhöfum á síðasta ári.

Sea Shepherd samtökin sökuðu í morgun áhöfn japanska hvalveiðiskipsins Yushin Maru 2 um að taka tvo liðsmenn samtakanna í gíslingu.

Segja samtökin áhöfn skipsins hafa bundið Benjamin Potts, frá Ástralíu og Bretann Giles Lane, við mastur skipsins og að hún neiti að láta þá lausa.  Mennirnir eru úr áhöfn báts samtakanna Steve Irwine n skipstjóri hans er Paul Watson, formaður samtakanna.

Þeir eru sagðir hafa farið um borð í hvalveiðiskipið með skilaboð til áhafnarinnar um að veiðar hennar væru ólöglegar. 

Hafa samtökin krafist þess að áströlsk og bresk stjórnvöld hlutist til um málið þegar í stað.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert