Pólitískir andstæðingar í Kenýa tókust í hendur í dag á málamiðlunarfundi sem var stýrt af Kofi Annan, fyrrum framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna.
Þetta var í fyrsta sinn sem forseti Kenýa Mwai Kibaki og leiðtogi stjórnarandstöðunnar Raila Odinga hittust síðan umdeildar kosningar voru í landinu í desember síðastliðnum.
Í kjölfar kosninganna braust út ofbeldisalda í Kenýa. Leiðtogarnir heita því að finna leið til þess að binda enda á deilurnar sem hafa orðið 700 manns að bana í Kenýa.