Lögreglan yfirheyrir nú franska verðbréfamiðlarann Jerome Kerviel, sem er sakaður um að hafa kostað franska bankann Societe General 4,9 milljarða evra.
Í dag var Kerviel færður á höfuðstöðvar lögreglunnar í París sem sérhæfir sig í fjársvikamálum.
Kerviel hvarf um tíma eftir að stjórnendur bankans tilkynntu um tapið sl. fimmtudag.
Lögreglan framkvæmdi húsleit á heimili hans í úthverfi Parísar í gær og lagði jafnframt hald á vinnutölvu Kerviels og ýmis gögn í höfuðstöðvum bankans.
Societe Generale hefur höfðað mál á hendur verðbréfamiðlaranum. Bæði lögmaður og fjölskylda Kerviels hafa haldið fram sakleysi hans.