Herskáir Palestínumenn skutu Qassam flugskeytum yfir landamæri Gasasvæðisins til Ísraels í morgun og höfnuðu þau á tveimur verksmiðjuhúsum í iðnaðarhverfi ísraelska bæjarins Sderot. Þá felldu ísraelskir hermenn tvo vopnaða Palestínumenn í nágrenni bæjarins Rafah á sunnanverðu Gasasvæðinu í morgun. Samkvæmt upplýsingum Ísraelshers skutu hermennirnir mennina er þeir nálguðust þá þar sem þeim þóttu þeir grunsamlegir.