Ísraelskar herþotur gerðu í kvöld loftárásir á Palestínumenn á Gasa-svæðinu sem hugðust gera eldflaugaárásir inn í Ísrael og særðust þrír. Palestínska heilbrigðisráðuneytið segir þá særðu vera óbreytta borgara.
Sex lögreglumenn úr röðum Hamas létust í aðgerðum ísraelska hersins fyrr í dag.