Lundúnalögreglan bíður nú eftir að rannsókn leiði í ljós dánarorsök manns sem fannst látinn bakvið röð verslana við Kingsgate Place í Kilburn í norðurhluta borgarinnar. Lík mannsins var vafið inn í rúmföt.
Sky fréttavefurinn skýrir frá því að þó að enn hafi ekki verið tilkynnt að um morðrannsókn sé að ræða mun lögreglan haga verklagi sínu í einu og öllu eins og svo sé.
Samkvæmt heimildum Sky innan lögreglunnar er um grunsamlegan dauðdaga að ræða en menn vænta þess að málið breytist í morðrannsókn á hverri stundu.
Vegfarandi sem átti leið um uppgötvaði líkið um klukka sjö í morgun. Lögreglan hefur lokað stórum hluta af Kilburn High Road fyrri allri umferð á meðan lögreglan leitar að vísbendingum.