Mótherji Mugabes rekinn vegna mótframboðs

Simba Makoni tilkynnti á þriðjudag að hann hygðist bjóða sig fram til forseta og var í gær rekinn úr stjórnarflokknum vegna þess. Kveða reglur flokksins á um að óheimilt sé að fara fram gegn Robert Mugabe.

„Hann rak sig sjálfur úr flokknum, hann var ekki rekinn af neinum öðrum en sjálfum sér,“ segir talsmaður flokksins. Saka andstæðingar Makonis hann um að vera svikari og strengjabrúða Bandaríkjanna. aij

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert