Romney hættur

Mitt Romney.
Mitt Romney. AP

Mitt Romney hefur ákveðið að hætta þátttöku í forvali repúblíkana vegna forsetakosninganna í Bandaríkjunum, að því er CNN hefur eftir heimildamönnum.

Romney er í öðru sæti í baráttunni um útnefningu sem forsetaefni flokksins, en John McCain hefur mikið forskot á hann og hefur það verið mat stjórnmálaskýrenda að Romney ætti í raun ekki möguleika á að sigra McCain úr þessu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert