Átta laumufarþegar eru á sjúkrahúsi í Bretlandi eftir að hafa fengið gaseitrun þar sem þeir földu sig í tankbíl á leið frá Þýskalandi til Bretlands. Bílstjóri bílsins varð var við fólkið er hann hugaði að farmi sínum í Abbey Wood suðaustur af London í morgun.Fólkið var flutt á sjúkrahús og svæði í kring um tankbíllinn var lokað vegna hættu á leka en sterk gaslykt mun vera í nágrenni bílsins