Stærstu matvörukeðjur Grikklands og borgaryfirvöld í Aþenu hafa sagt plastpokum stríð á hendur en talið er að árlega séu notaðir 2,5 milljarður plastpoka í Grikklandi. Í dag var sett á laggirnar auglýsingaherferð til þess að fá fólk til þess að draga úr notkun plastpoka.
Á blaðamannafundi sagði einn yfirmaður grísku keðjunnar My Market að þetta gangi ekki lengur enda ekki óalgengt að fólk taki eina fimm poka aukalega með sér heim þegar það fer að versla.