Eigandi skartgripabúðar í Árósum í Danmörku hefur sett myndskeið á vefinn YouTube sem sýnir þegar grímuklæddur maður ruddist inn í verslunina sl. föstudag og réðist á þrjár konur, sem þar starfa, þar á meðal eiginkonu og mágkonu verslunareigandans.
Ræninginn hafði síðan á brott með sér skartgripi og muni, sem verðlagðir eru á allt að 14 milljónir króna.
Kaupmaðurinn heitir einnig hverjum þeim, sem getur borið kennsl á ræningjann, jafnvirði 340 þúsund króna að launum.
„Ég held að einhver í Árósum þekki hann. Mér líkar ekki, að starfsfólk mitt sé rænt og kona mín slegin," segir Preben Randløv við blaðið Århus Stiftstidende.