Rannsókn portúgölsku lögreglunnar á hvarfi bresku stúlkunnar Madeleine McCann er nær lokið að sögn Alberto Costa, dómsmálaráðherra í Portúgal.
Níu mánuðir eru liðnir frá því hin þriggja ára Madeleine hvarf úr íbúð þegar hún var í sumarleyfi með fjölskyldu sinni á Praia de Luz í Portúgal.
Alberto Costa hafnar ummælum um að lögreglunni í Portúgal hafi mistekist í rannsókninni og segir of snemmt að segja til um það. Ekkert hefur spurst til Madeleine síðan 4. maí í fyrra, og engir grunaðir hafa verið ákærðir.